VOOZH about

URL: https://is.wikipedia.org/wiki/Andefni

⇱ Andefni - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið


Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Andefni er andstaða efnis, þ.e. samsett úr andeindum samsvarandi öreinda efnisins. Það hefur ekki fundist á jörðinni, því efni og andefni eyða hvort öðru samstundis ef þau komast í snertingu og mynda öfluga gammageisla. Andeindir finnast í dálitlu magni í geimnum, t.d. í geimgeislum og þær myndast einnig í eindahröðlum. Sérhver rafhlaðin öreind á sér andeind með sama massa, en gagnstæða hleðslu, t.d. er jáeind andeind rafeindarinnar.

Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Andefni.
👁 Image
Þessiefnafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.