VOOZH about

URL: https://is.wikipedia.org/wiki/Stanford_University

⇱ Stanford-háskóli - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið


Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Stanford University)
👁 Image
Háskólasvæðið séð úr lofti.

Stanford-háskóli (Leland Stanford Junior University, þekktari sem Stanford University eða einfaldlega Stanford), er einkarekinn rannsóknarháskóli í Kaliforníu. Skólinn er í Silicon Valley í Santa Clara-sýslu, 60 km suðaustur af San Francisco og um 36 km norðaustur af San Jose. Skólinn var stofnaður árið 1891.

Við skólann kenna tæplega 1800 kennarar en nemendur eru á 7. þúsund í grunnnámi og rúmlega 8 þúsund í framhaldsnámi. Fjárfestingar skólans nema 15,2 milljörðum bandaríkjadala en skólinn er þriðja ríkasta menntastofnun Bandaríkjanna á eftir Harvard og Yale.

👁 Image
Þessiskólagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.