VOOZH about

URL: https://is.wikipedia.org/wiki/Sterlingspund

⇱ Breskt pund - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið


Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Sterlingspund)
Breskt pund, sterlingspund
Pound sterling
Land👁 Fáni Bretlands
Bretland
👁 Fáni Breska Suðurskautslandsins
Breska Suðurskautslandið
👁 Fáni Falklandseyja
Falklandseyjar
👁 Fáni Gíbraltar
Gíbraltar
👁 Fáni Guernsey
Guernsey
👁 Fáni Jersey
Jersey
👁 Fáni Manar
Mön
👁 Fáni Sankti Helenu
Sankti Helena, Ascension og Tristan da Cunha
👁 Fáni Suður-Georgíu og Suður-Sandvíkureyja
Suður-Georgía og Suður-Sandvíkureyjar
Skiptist í100 penní (pennies)
ISO 4217-kóðiGBP
Skammstöfun£ / p
Mynt1p, 2p, 5p, 10p, 25p, 50p, £1, £2
Seðlar£5, £10, £20, £50 (£100)

Breskt pund eða sterlingspund (enska: pound sterling) er gjaldmiðill á Bretlandi. Eitt pund skiptist í 100 penní (enska: penny, ft. pence). Árið 1971 voru eftirtaldar upphæðir gildur gjaldmiðill á Bretlandi:

  • Seðlar: £5, £10, £20, £50 (£100, aðeins í Skotlandi og á Norður-Írlandi)
  • Mynt: 1p, 2p, 5p, 10p, 25p, 50p, £1, £2

Algengasta táknið fyrir breskt pund er eða £ („pundamerkið“), og p fyrir penníið.

Upphaflega jafngilti verðmæti þess einu pundi (454 grömm) af 92,5% hreinu silfri með 7,5% eir, sem kallast sterling silfur. Af því er dregið nafnið sterlingspund.

Fyrir 1971 var einu pundi skipt í 20 skildinga (shillings), sem hver um sig jafngilti 12 penníum. Þannig var eitt pund jafnt 240 penníum. Frá og með 1971 voru skildingar lagðir niður og verðgildi á „nýja penníinu“ varð 2,4 sinnum meira en áður hafði verið.

Pundið er gefið út af Seðlabanka Englands (Bank of England), sem hefur einkaleyfi til þess á Englandi og í Wales, eða tveimur af fjórum löndum sem mynda Bretland, en af sögulegum ástæðum hafa fjórir bankar í Skotlandi og þrír á Norður-Írlandi leyfi til að gefa út sín eigin pund, þar á meðal gefur t.d. Danske Bank út bresk pund, merkt "Danske" á Norður-Írlandi, eftir kaup á Northern Bank.[1][2]

Pundið varð eitt af gjaldmiðlum Evrópusambandsins en við útgöngu breta hætti pundið að vera það. Það er hins vegar notað víða í viðskiptum, t.d. einn af mörgum gjaldmiðlum í Simbabve eftir að óðaverðbólga gerði þeirra dollara ónothæfan.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Breskt pund.
  1. https://en.wikipedia.org/wiki/Banknotes_of_the_pound_sterling
  2. https://en.wikipedia.org/wiki/Banknotes_of_Northern_Ireland#Danske_Bank/Northern_Bank_notes
👁 Image
Þessihagfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.