VOOZH about

URL: https://is.wikipedia.org/wiki/Gulahaf

⇱ Gulahaf - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið


Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
👁 Image

Gulahaf er nafn á hafsvæði milli Kína og Kóreuskagans. Það dregur nafn sitt af því að sandfok úr Góbíeyðimörkinni litar yfirborð hafsins gult. Í Kóreu er hafið stundum nefnt „Vesturhafið“.

Innsti hluti hafsins er kallaður Bohaihaf. Í það rennur Gulafljót.

Gulahaf er eitt fjögurra hafa, sem eru kennd við liti; Hin eru Svartahaf, Rauðahaf og Hvítahaf.

Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Gulahaf.
👁 Image
Þessilandafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.