VOOZH about

URL: https://is.wikipedia.org/wiki/Maryland

⇱ Maryland - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið


Fara í innihald
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maryland
State of Maryland
Viðurnefni:
  • Old Line State
  • Free State
  • Little America
  • America in Miniature
Kjörorð:
Fatti maschii, parole femine (latína)
👁 Maryland merkt inn á kort af Bandaríkjunum
Staðsetning Maryland í Bandaríkjunum
Land👁 Image
Bandaríkin
Varð opinbert fylki28.apríl 1788;fyrir 237árum(1788-04-28) (7. fylkið)
HöfuðborgAnnapolis
Stærsta borgBaltimore
Stærsta sýslaMontgomery
Stjórnarfar
FylkisstjóriWes Moore (D)
•VarafylkisstjóriAruna Miller (D)
Þingmenn
öldungadeildar
  • Ben Cardin (D)
  • Chris Van Hollen (D)
Þingmenn
fulltrúadeildar
Flatarmál
•Samtals32.133km2
•Land25.314km2
•Vatn6.819km2 (21%)
•Sæti42. sæti
Stærð
•Lengd400km
•Breidd200km
Hæð yfir sjávarmáli110m
Hæstipunktur

(Hoye-Crest)
1.024m
Lægstipunktur0m
Mannfjöldi
(2020)[1]
•Samtals6.177.224
•Sæti18. sæti
•Þéttleiki244/km2
•Sæti5. sæti
Heiti íbúaMarylander
Tungumál
•Opinbert tungumálEkkert
TímabeltiUTC−05:00 (EST)
SumartímiUTC−04:00 (EDT)
Póstnúmer
MD
ISO 3166 kóðiUS-MD
StyttingMd.
Breiddargráða37°53'N til 39°43'N
Lengdargráða75°03'V til 79°29'V
Vefsíðamaryland.gov

Maryland er fylki á mið-austurströnd Bandaríkjanna. Fylkishöfuðborgin er Annapolis en Baltimore er stærsta borgin. Maryland er fyrir neðan Mason-Dixon línuna og er talið suðurríki af Bandarísku ríkisstjórninni. Í fylkinu búa rúmlega 6,2 milljónir manna (2020).

Landafræði

[breyta | breyta frumkóða]

Maryland er 32.133 ferkílómetrar og er þess vegna svipað stórt og Belgía. Það er áttunda minnsta ríki Bandaríkjanna. Vestur-Virginía, er tæplega tvisvar sinnum stærra. Í Maryland er fjölbreytt landslag og fylkið hefur þess vegna stundum lýst sem „smækkaðri mynd af Ameríku“. Það eru bæði sólstrandir á austurströndinni, mýri við flóann, skógar með eikum á Piedmont svæðinu og furusvæði við fjöllin í vestrinu. Chesapeake Bay er stærsta vatnasvæði í Maryland. Maryland er staðsett suður við Pennsylvaníu, austur við Vestur-Virginíu, vestur við Delaware og Atlantshafið og norður við Virginíu. Washington, D.C. er á svæði sem var eitt sinn hluti af Maryland annars vegar og Virginíu hins vegar.

Flestir íbúar Maryland búa í borgum og úthverfunum við Washington, D.C. en einnig í og kringum stærstu borg Maryland, Baltimore. Önnur fjölmenn svæði í Maryland eru úthverfin Columbia í Howard County; Silver Spring, Rockville, og Gaithersburg í Montgomery County; Laurel, College Park, Greenbelt, Hyattsville, Landover, Clinton, Bowie, og Upper Marlboro í Prince George's County; Frederick í Frederick County; Hagerstown í Washington County; Waldorf í Charles County; Pikesville, Essex, og Towson í Baltimore County; og Glen Burnie og Hanover í Anne Arundel.

Austur, suður, og vesturhlutar fylkisins eru ekki jafn fjölmenn, en þar eru borgirnar Salisbury og Ocean City á Austurströnd, Lexington Park og Waldorf í Suður-Maryland og Cumberland í Vestur-Maryland.

Kynþættir

[breyta | breyta frumkóða]
  • Hvítir - 62,1%
  • Svertingjar - 27,9%
  • Latinóar - 4,3%
  • Asíufólk - 4%
  • Blanda af tveimur kynþáttum - 2%
  • Frumbyggjar (Indjánar) - 0,3%

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „QuickFacts: Maryland“. United States Census Bureau. Sótt 3 apríl 2022.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Maryland.