Minsk
| |
|---|---|
| 👁 Sigurtorgið í Minsk Sigurtorgið í Minsk | |
|
👁 Fáni Minsk Fáni 👁 Skjaldarmerki Minsk Skjaldarmerki | |
Staðsetning í Hvíta-Rússlandi | |
| Hnit: 53°54′8.086″N 27°33′42.613″A / 53.90224611°N 27.56183694°A / 53.90224611; 27.56183694 | |
| Land | 👁 Image Hvíta-Rússland |
| Flatarmál | |
| •Samtals | 409,53km2 |
| Hæð yfir sjávarmáli | 280,6m |
| Mannfjöldi (2025)[1] | |
| •Samtals | 1.996.730 |
| •Þéttleiki | 4.900/km2 |
| Tímabelti | UTC+03:00 (MSK) |
| Póstnúmer | 220001-220141 |
| Svæðisnúmer | +375 17 |
| ISO 3166 kóði | BY-HM |
| Vefsíða | minsk.gov.by |
Minsk (hvítrússneska: Менск /mʲensk/, Мінск /mʲinsk/; rússneska: Минск /mʲinsk/) er höfuðborg Hvíta-Rússlands. Íbúafjöldi er áætlaður um 1.996.730 (2025).[1] Minsk hýsir meðal annars höfuðstöðvar Samveldis sjálfstæðra ríkja sem er samstarfsvettvangur fyrrum Sovétlýðvelda.
Minsk var stofnuð af Austur-Slövum á 9. öld og var síðan hluti af Polatsk-furstadæminu undir lok 10. aldar. Árið 1129 var furstadæmið innlimað af Garðaríki en 1146 varð það aftur sjálfstætt. 1242 varð borgin hluti af Stórfurstadæminu Litáen og síðan Pólsk-litáíska samveldinu. Borgin var lögð í rúst í nokkrum meiriháttar styrjöldum á 17. og 18. öld (Pólsk-rússneska stríðið, Norðurlandaófriðurinn mikli) og var að lokum innlimuð af Rússum 1793. Borgin óx hratt á 19. öld og járnbrautin milli Moskvu og Varsjár var lögð um hana 1846. Fyrir Síðari heimsstyrjöldina var íbúafjöldinn kominn í um 300 þúsund. Þjóðverjar náðu borginni á sitt vald skömmu eftir innrásina í Sovétríkin sumarið 1941 og hernámsliðið notaði borgina sem höfuðstöðvar. 1944 náðu Sovétmenn síðan borginni aftur eftir mikla bardaga þar sem meirihluti hennar var lagður í rúst og íbúafjöldinn um 50 þúsund. Eftir stríðið var borgin endurreist með byggingum í sovéskum stíl. 1972 náði íbúafjöldinn einni milljón. 1990 varð borgin höfuðborg hins nýstofnaða Hvíta-Rússlands.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 „Численность населения на 1 января 2025 г. и среднегодовая численность населения за 2024 год по Республике Беларусь в разрезе областей, районов, городов, поселков городского типа“. belsat.gov.by. Afrit af upprunalegu geymt þann 29. mars 2025. Sótt 29. mars 2025.
